Þú getur allt sem þú ætlar þér
Englarnir okkar
myndir
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
10.12.2007 13:24:45 / Ragnheiður

Jóla þema :)

Varð að setja smá jólaþegma þar sem það eru nú einu sinni að koma jól.

Annars verð ég að láta ykkur vit að því hvað ég hlakka skuggalega mikið til að fara í jólafrí.... jájájá var búin að gleyma hvað maður hlakkaði alltaf til þess að taka frí þegar maður var í skóla heheh (Ragnheiður GAMLA) en annars er stelpu gormurinn minn hún Telma Fanný búin að vera svo ótrúlga kvefuð að við höfum ekki mikið gert í því að fara út og svona. en vona að þetta fari að fara úr henni er alveg að migla hérna inni.

Annars er held ég þetta kvef að ganga eins og þessar pestar allar. Veit að Eiríkur Frímann er svakalega kvefaður líka og Kolbrún Líf var e-ð slöpp. Birta Dögg hefur sloppið við allt svona nokkurnveginn en hóstar svolítið enda kannski líka það að hún myndi hlaupa út á brókinni ef hún mætti... hehe

 

En kemur vonandi e-ð fleira frá okkur um leið og jólafríið byrjar jajajajaja

KV. Ragnheiður


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 12:42:16 / Lára

Komin nöfn á börnin!

Jæja svona aðeins meiri fréttir en við erum núna báðar búnar að skýra.

Við skýrðum okkar dreng bara 2ja daga gamlan Eirík Frímann Jónsson.

Ragnheiður og Svavar skýrðu snúlluna sína Telmu Fanný Svavarsdóttir.

Vildi bara minna ykkur á að við eigum fallegustu börn í geyminum. Þar með talið stóru stelpurnar okkar þær Birtu Dögg og Kolbrúnu Líf.

heyrumst


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 11:06:22 / Lára

Komin ný börn

Jæja þá er þetta komið hjá okkur báðum. Ég átti strákinn minn 21 Águst ´07 kl 12.20 heilar 19 merkur og 55 cm ekki meira né minna. Og er ég búin að skíra hann Eirík Frímann 

Ragnheiður átti á Laugardaginn 20 oktober stelpu klukkan 17.25. 14 merkur og 50 cm (alveg eins og Kolbrún var)

Jahá nú er sko nóg að gera hjá okkur og allir að koma í heimsókn svo okkur eigi ekki eftir að leiðast á meðan þessi nýju kríli sofa bara allan daginn ;)

Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 19:50:43 / Ragnheiður

´Þá er minn dagur kominn :)

Minn dagur að kveldi komin og ekkert að ske :S.... frekar pirruð hehe... (veit það þíðir ekkert)

Búin að taka út mitt drama... búin að prófa hitt og þetta t.d. nudd (punktanudd) vona að það virki og allskonar heima aðferðir (förum ekkert meira út í það;), annars er bara næst á dagskrá að láta kallinn nudda mig bara eins mikið og möguleiki er fyrir svo að við séum að mýkja allt saman :) Vona að það virki allavegna :)

 Annars hef ég það ljómandi er ótrúlega hress gæti alveg farið út að hlaupa ef mér myndi detta það í hug hefði alveg orku í það (hef samt ekki framkvæmt það enþá vegna kulda).

Annars er alveg að nálgast vetur ... ojjjjjjjj..... pant ekki... nenni ekki .... spá í að skella mér í sólina (svona þegar við vinnum í lottó hehe)....

Annars hittumst við skvísurnar á fimmtudaginn seinasta í svona mömmu klúbb... geggjað spennandi (fékk að vera með þó að krílið mitt láti bíða eftir sér).

Annars er ég bara spennt fyrir framhaldinu... algjöru hámarki 2 vikur eftir svo ég þrauka svosem alveg.... first krílið er ekki komið þá kemst ég líka líklegast í hittinginn með skvísunum á morgun svo það er alveg flott líka :)

En bið að heilsa í bili ;)

 

Kv. Ragnheiður


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 19:45:28 / Ragnheiður

Jæja og jæja

Jæja það er sko búið að vera nó að gera hjá okkur Láru...

Lára auðvitað komin með gullfallegan lítin snáða sem fæddist 21. ágúst og auðvitað nó að gera hjá henni með bæði börnin :) Enda óskum við henni bara góðs gengis með englana 2 :)

Eins stækka ég enþá :) eða svoleiðis.. hehe þetta fer að styttast hjá mér og ekk nema 3vikur og 4 dagar í settan dag eða þá mesta lagi 5 vikur og 4 dagar í að þetta gerist :) spennandi spennandi :)

En annars er alveg brjálað að gera í skólanum hjá mér :) En gamla konan ákváði að skella sér í FSN með krökkunum og vitiði hvað... þetta er nú bara brjálað stuð....

Þau eru svo heimsins mestu krútt :) Alveg að missa sig á hormónum og svona hehe... en það er bara gaman...

Annars taka þau mér bara nokkuð vel (eða það held ég) hehe :)

 Annars er alveg nó að gera fyrir utan skólann líka þar sem stóra stelpan mín er sko kominn í elstu barna í leikskólanum og finnst það auðvitað rosalega spennandi... einnig er hún kominn í fótbolta og er áfram í Íþróttaskólanum. Þannig að það er nú alltaf nó að gera hjá henni :)

Já annars... langaði mig bara svona aðeins að láta vita að við værum á lífi... þó að það mætti ekki halda það hehehe... en við sjáum til hvort við náum að lífga upp á þetta svona í bráð :)

 

Bið að heilsa.... Kv. Ragnheiður


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 22:49:43 / Ragnheiður

Fann þetta AUÐVITAÐ á barnalandi :D

Þetta er náttúrulega algör snild fyrir ykkur sem eruð í barna hugleiðingum  :)

 

Það að vera foreldri breytir manni heldur betur. En það að vera foreldri breytist lík með hverju barninu sem þú eignast. Hér á eftir koma nokkrar staðhæfingar um hvernig það er þegar maður eignast fyrsta, annað og þriðja barn.

FÖTIN MÍN.
Fyrsta barn: Þú byrjar að klæðast óléttufötum um leið og óléttuprufan staðfestir að þú ert ólétt.
Annað barn: Þú reynir að ganga í venjulegum fatnaði eins lengi og þú getur.
Þriðja barn: Óléttufötin eru þín venjulegu föt.

FÆÐINGARUNDIRBÚNINGUR.
Fyrsta barn: Þú æfir öndun reglulega á hverju degi.
Annað barn: Þú sleppir því að æfa þessa helv.... öndun því þú manst vel að hún hjálpaði þér ekkert síðast.
Þriðja barn: Þú biður um mænudeyfingu á áttunda mánuði meðgöngu.

ÞVOTTUR.
Fyrsta barn: Þú forþværð öll fötin af nýburanum, þværð aðeins rétta liti saman, straujar fötin og brýtur þau fallega saman ofan í kommóðu.
Annað barn: Þú tékkar fötin og klæðir barnið í allt nema fötin sem eru með mestu blettunum.
Þriðja barn: Æi strákar geta alveg verið í bleikum fötum!!!!!!!!!

ÁHYGGJUR.
Fyrsta barn: Þú tekur upp barnið um leið og þú sérð að það er alveg að fara að gáta, kúka, pissa, geispa,. Osfrv.
Annað barn: Þú tekur upp barnið þegar vælið í því er alveg að fara að vekja eldra barnið.
Þriðja barnið: Þú kennir frumburanum sem nú er orðin/n þriggja ára að trekkja upp óróann fyrir ofan vögguna hjá nýburanum.

SNUÐ.
Fyrsta barn: Ef snuðið dettur á gólfið eitthverstaðar vefur þú hana inn í servettu, setur hana í töskuna og þværð hana og sýður þegar þú kemur heim. Passar alltaf að hafa auka snuð þegar þú ferð að heiman.
Annað barn: Ef snuðið dettur á gólfið, skolar þú það með djúsinu úr pelanum og setur hana aftur upp í barnið.
Þriðja barnið: Þú einfaldlega þurrkar það mesta af snuddunni með bolnum þínum og setur hana aftur upp í krakkann.

BLEYJUR.
Fyrsta barn: Þú skiptir á barninu á klukkustundarfresti, hvort sem þess þarf eða ekki.
Annað barn: Þú skiptir á barninu á tveggja til þriggja stundar fresti ef þörf þykir.
Þriðja barnið: Þú reynir að skipta á barninu áður en aðrir fara að kvarta yfir skítalykt eða þegar þú sérð að bleyjan er orðin svo yfirfull að hún lafir niður að kálfum á barninu.

DAGLEGT LÍF.
Fyrsta barn: Þú ferð með barnið í ungbarnaleikfimi, ungbarnasund og sögustund á bókasafnið.
Annað barn: Þú lætur barnið í pössun á líkamsræktarstöðinni á meðan þú ferð í fitubrennslutíma.
Þriðja barnið: Þú tekur barnið með þér þegar þú ferð að versla inn.

SKEMMTUN.
Fyrsta barn: Þegar þú ferð í fyrsta skiptið út að djamma og skilur barnið eftir hjá barnapíunni , hringir þú heim á hálftíma fresti.
Annað barn: Rétt áður en þú ferð út um dyrnar manst eftir að láta barnapíuna fá númerið þar sem hægt er að ná í þig.
Þriðja barnið: Þú skilur eftir þau fyrirmæli til barnapíunnar að hringja ekki í þig nema að hún sjái blóð!!.

HEIMA.
Fyrsta barn: Þú eyðir góðum tíma á hverju einasta degi bara í það að skoða litla fallega barnið þitt. Jafnvel þó að það sé sofandi.
Annað barn: Þú eyðir dágóðum tíma á hverjum einasta degi í að fylgjast með að eldra barnið sé ekki að klípa, pota eða slá það yngra.
Þriðja barnið: Þú eyður dágóðum tíma á hverju einasta degi í að fela þig fyrir börnunum!!!!

Sendu þetta til allra sem EIGA börn, eða til allra sem ÞEKKJA eitthver sem á barn/börn. Eða til allra sem eitthver tíman hafa VERIÐ börn.
Þessi pistill hér að ofan var saminn af þriðja barninu.. og á meðan ég man " mamma ég er búin að sjá allra myndirnar af eldri systkinum mínum......... en hvar eru myndirnar af MÉR?

 Ragnheiður sem stækkar með hverjum deginum :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 16:59:28 / Ragnheiður

Jæja best að koma þessu frá sér

Þar sem ég er búinn að reyna nokkrum sinnum að skrifa og tölvu draslið bara já nei þetta gengur ekki og ég nenni þessu og svo skilar tölvu draslið ekki færsluni....

Svo nú reyni ég ....

Annars búið að vera nó að gera í Féló .... forvarnarvikan búin og rosalega gaman (alla vegna að mínu mati )

Annars er Jónas vinur okkar Birtu Daggar ekki búinn að koma neitt þennan mánuðinn þar sem páskarnir komu þarna inn á milli og Jónas og fjölskyldan hans voru á ferðalegi ( fyrir þá sem ekki vita hver jónas er þá erum við stuðningsfjölskyldan hans (mælum með þessu þetta er mjög gefandi og skemmtilegt)).

Annars er ég líklegast að fara vinna í bæjarvinnunni í sumar (eða sótti allavegna um veit ekki hvað verður :) )

Annars er ég farinn að hlakka til að fá Berglindi Ósk heim :)

Við Birta  Dögg og KristínLára fórum svo seinustu helgi í afmæli hjá Öldu Kristínu (stelpunni hennar Hildar og Heiðars).

Annars hlakka ég til að sumarið koma fer nefnilega í ferðalega svo snemma eða förum til Tyrklands í 2 vikur vííííí það verður geggjað...

Annars er búið að biðja mig um að koma til Uhta (held að það sé skrifað svona), Noreg,Danmörku og audda Lúx:)

Lofaði reyndar frænku minni ef maður færi til Dk myni ég koma við í Svíþjóð hjá henni... hehe

úff... nó að gera ef maður ætlaði að standa við þetta allt saman

 

En þetta er nó í bili .... krossa fingur og vona að þetta fari innn

lovya....

Kv. Ragga feita :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 20:12:46 / Lára

Alltí læ þá!

Það er greinilega það mikið að gera hjá Ragnheiði - annars held ég að hún hangi í tölvunni allavega klukkutíma á dag... Við heimtum blogg.

 

Annars var tenerife frábær. Förum í sónar núna á fimmtudaginn ef guð lofar - Ef Nonni er í landi.

Kynnið ykkur V-daginn - stöndum saman.

kv Lára


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 20:32:14 / Lára

Jæja Ragga mín

Lifir þú svona aumkunarverðu lífi að þú hefur ekki um neitt að blogga???

 

koma svo Ragnheiður...

YOU CAN DO IT

Lára


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 21:17:00 / Lára

Góð helgi af baki

Jæja þá er G. Smári orðin 50 ára og held ég bara að meir en hálfur bærinn hafi komið saman í gær og fagnað því með kauða. Mjög svo vel heppnuð veisla með mat og vín, flottum veislustjórum og góðum trúbadorum. Runni og Maja sáum um veislustjórn og svo sá Sælubandið eða Brusselbandið um að halda fólki á dansgólfinu og voru bara helvíti góðir. Við hjú fórum bara snemma heim eða rétt eftir 12. Mér skillst að fólk hafi verið að alveg til 3. Fólk var í góðu jafnvægi og stuði þegar við fórum og vildum við "hætta" á toppnum hehe

Sunnudagurinn hefur verið tekin í ró eða svona næstum, voða lítil ró með Kolbrúnu all over hehe.. Fékk bollur og svo sannalega þær bestu sem ég hef smakkað. Bakaðar af engri annari en Eygló. Ég er ekki von að éta þetta sykur rjóma jukk en ákvað að láta til skara skríða allavega að mæta í bollu kaffi þar sem marh á barn sem kannski myndi vilja... sem og hún gerði - ég ákvað að smakka eina og endaði með 3 hehe... namm namm núna borða ég bara Eyglóar bollur!

Heilsan fín á þessum bæ, Nonninn farinn á sjóinn og að ég held Svavar líka. Ég veit að Ragnheiður er á lífi en hvort hún sé orðin blind ekki viss... Ekki nema 3 dagar þar til við hjú förum í útlandið og er mikil eftirvænting... mmmm Tenerife í viku ALONE!

jæja þið hafið orðið! hvað er upp í dag?

kv Lára-n


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 12:34:03 / Lára

Hvað er að ské?

Nú er sko kominn tími til að taka sig tak og þá meina ég það!!!! Þið kommentarar verðið lika að vera dúleg/ir að halda okkur við efnið HA.....

 Ymislegt búið að gerast í bænum, Þorrablót þar seinustu helgi sem að mínu mati heppnaðist bara rosa vel. Ég var að vinna svo ég gat fylgst með öllu saman. En þar sem við erum ekki í hjónaklúbbnum þá gátum við víst ekki farið sem hmm æ svona fólk sem horfir á. Heheh en það var líka ok Nonni var bara á sjónum sínum þar sem hann á heima þannig ég ákvað barasta að vinna ;) Sem var jú betra - meina að fá pening fyrir að vera þarna á meðan fólk borgaði fyrir það... En jú ég þurfti líka alveg að vinna fyrir þessum pening. Þar sem þetta var flöskuball þá var a lot lot af flöskum og rusli og svo var bar og náttla allt skemmtilega uppvaskið hehe... En já þetta var barasta rosa stöð.. Ragnheiður var þarna sem gestur en lét  sig hverfa þegar kallinn var kominn í með of í stóru tána og hafði þá afsökun að maginn hafi verið að plaga hana hehehehehe....

Þessa sömu helgi kom Natasha vinkona mín á nesið og var með hiphop og breik námskeið í ólafsvík sem var líka svona æði skemmtilegt. Ég get lofað ykkur að það fór enginn svekktur heim. Hún ætlar sér að koma fljótt aftur og þá fyrir yngri krakka líka...

Held að seinasta helgi hafi bara verið róleg. Ég var bara heima að mála og sauma gardínur. Frekar dugleg.

Þið sem ekki vitið þá er komin ljósastofa í kósý, hef ekki farið enþá en ætla mér það áður en ég fer út sem er nota bene eftir 9 daga ;) Það fer líka hver og einn að vera seinastur að kaupa sér kort á góðu verði. 10 tímar á 5000 ;) en það tilboð er frá 1-14 feb ;)

Næsta helgi hmm jamm nóg að gera... G.Smári verður fimmtugur ogbíður öllum bæjarbúum í samkomuhúsið og er skilst mér ball og læti. Kopar held ég spila fyrir dansi. Svo er ball  - GRÍMUBALL -  á kaffi 59 og eru þessir atburðir báðir 17 feb. Mér er boðið á frændsistkyna kvöld í rvk en ég er ekkert búin að ákveða hvað gera skal.

Allir að koma á ball hvort sem það er í samkomuhúsinu eða á kaffi og allir að fara í ljós aður og gera sig sæta ;)

kv Lára Klára


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 13:31:54 / Ragnheiður

Ein færsla :D

Jæja best að skella eins og einni færslu hérna inn hvernig væri það??

Híhí... úff.. búið að vera brjálað að gera hérna er búin að vera að fá ný börn inn  hjá mér , alltaf nó að gera þegar ný börn koma inn :) Svo er búið að vera að skipta um 4 glugga og alveg búið að vera frekar kallt hérna inni enda kannski ekki heitasti tími ársins til að framkvæma svona hluti en ekki það er svo sátt að það sé búið að skipta um glugga og auðvitað voru kallarnir MÍNIR eða pabbi minn og Svavar minn sem fengu þessi verkefni... hélt samt að þeir yrðu úti þar sem ég var að deyja úr kuld að vera að reyna að gera e-ð inni, svo var verið að taka plötur inni í stofu og er verið að þurka þar á bakvið og þarf jafnvel að skipta um e-n hluta af spítunum... en úff... hvað ég verð ánægð þegar þetta verður alveg búið inni... skipta um spíturnar, setja plötur fyrir aftur klára að skipta um hina gluggana , setja hurðar allstaðar (þar sem það eru engar nema á klósettinu) og setja gluggakistur og svona svona mesta inni búið eða svona í bili...

Annars veit ég að það er alveg búið að vera nó að gera hjá henni Láru minni... bara flutt í nýtt hús til hamingju með það og gangi ykkur vel :)

Annars er bara frekar fátt að frétta hérna....

Einnig langar mig að halda áfram að minna fólk á ....

http://sos.is/

http://unicef.is/

http://www.abc.is/

http://www.abotinn.is/barnaheill/index1.htm

En endilega komið með komment og látið okkur vita hvað þið hafið verið að brasa...

kv. Ragnheiður


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 20:47:33 / Lára

Check This out

Snæfellsnes !! 

Check This Out

STREETDANCE
 

Breik
námskeið : 7.bekkur og eldri.
Hiphopnámskeið : 7.bekkur og eldri.  

Námskeiðin verða kennd í Sólarsport í Ólafsvík. 
 

Kennari er Natasha.

Hún kemur með alla heitustu dansana frá götum
New York borgar. Hún mun kenna helstu “basic” og flottustu sporin í Breik og Hiphop . Hún hefur kennt stelpum og strákum, á öllum aldri á Íslandi síðan 1998.
 You Ain´t To Old To Dance But When You Stop Dancing You´re Old!! J

    

  Takmarkaður fjöldi á hvert námskeið J

 
Nánari upplýsingar og skráning:

Hrafnhildur s: 822-6325
Lára í Grundafirði s: 868-4474




 
www.NATASHA.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 19:48:25 / Lára

2007

Þá er enn eitt árið gengið í garð og leggst það barasta vel í mig. Seinasta ár var með eindæmum gott og er ég því bjartsýn á það komandi. Völvu spáin í séð og heyrt spáir mér góðu ári svo ég treysti því.

Jólin voru hreunt æði hjá mér, algjör afslöppun og rólegheit. Eins með áramótin, held barasta að ballið hafi gert góða hluti og ekkert slæmt gerðist s.s slagsmál eða því um líkt. Ég hef aldrei farið á svona fjölmennt ball á Kaffi þótt ég hefði viljað sjá fleirri þarna..

Margt gerðist á árinu sem var að líða og má þar helst nefna að ég og Ragnheiður fluttum í fjörðin öllum til mikillar gleði ekki satt.

Jæja ég mæli með að allir sem eiga myndir af áramótaballinu á kaffi síni mér eða okkur, hendið bara linkum inn í komment ;)

þar til næst

Lára 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 17:47:17 / Ragnheiður

Jæja eitt jóla blog

Gleðileg Jól öll sömul... og takk fyrir það gamla og góða.. híhí (úff hvað árin eru fljót að líða). Vonandi hafið þið haft það gott um jólin...

allavegna er ég búin að hafa það svo heví nice að það er rosalegt.... búin að borða eins og svín... opna heví marga pakka svo marga pakka að ég er með hálfgert samviskubit... stefni á að biðja fólk um að styrkja frekar fátækt fólk úti í löndum eða styrkja e-r félög hérna á landinu, svona frekar en að vera að hafa fyrir því að gefa  mér pakka á allt svosem... er ekkert að missa mig yfir e-u sem ég á ekki... hef alveg lifað fínu lífi hingað til...

En á ekki að skella sér á ball hérna í Grundó um áramótin??

Koma svo með smá sögur um jólin ... :D

Kv. Ragnheiður belgur (hehehe)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3